150. löggjafarþing — 101. fundur, 11. maí 2020.
fjáraukalög 2020.
724. mál
Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp til að lýsa yfir stuðningi mínum við þessa tillögu. Hún kemur til móts við það sem við þurfum að vera að gera núna, að veita fólki, í þessu tilviki námsmönnum, tækifæri til að sinna verkefnum sem falla undir Nýsköpunarsjóð námsmanna. Þetta er kjörin leið fyrir ríkisstjórnarflokkana sem vilja alls ekki setja námsmenn á atvinnuleysisbætur til að koma til móts við kröfur þeirra þannig að ég styð þetta mál eindregið.