150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

fjáraukalög 2020.

724. mál
[17:07]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Miðflokkurinn hefur frá upphafi þeirra efnahagslegu hamfara sem nú ganga yfir þjóðina vegna veirufaraldursins lagt áherslu á stórar, almennar og einfaldar aðgerðir svo lágmarka megi það efnahagslega tjón sem við stöndum frammi fyrir. Ríkisstjórnin ákvað hins vegar að mæta vandanum í smáskömmtum sem gerir það erfiðara nú en áður að ná því skjóli fyrir atvinnulífið og heimilin sem nauðsynlegt er.

Miðflokkurinn hefur ásamt stjórnarandstöðunni lagt fram mikilvægar breytingartillögur um nauðsynlegar aðgerðir. Þær hafa því miður allar verið felldar af ríkisstjórnarflokkunum. Miðflokkurinn hefur einnig birt í fjölmiðlum fjölmargar tillögur og ábendingar ásamt því að senda forsætisráðuneytinu tillögur líka eins og óskað var eftir.

Miðflokkurinn styður þetta frumvarp og sýnir þar með ábyrgð og samstarfsvilja, annað en ríkisstjórnin gagnvart tillögum Miðflokksins og stjórnarandstöðunnar. Miðflokkurinn telur að aðgerð ríkisstjórnarinnar gangi ekki nógu langt til að mæta brýnni þörf fyrir nauðsynleg úrræði á þessum erfiðu tímum fyrir heimili og atvinnufyrirtæki landsmanna.