ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2020 um breytingu á XVII. viðauka við EES-samninginn.
Forseti. Við greiðum atkvæði gegn þessu máli. Þetta er breyting á viðauka við EES-samninginn. Við erum núna með frumvarp í atvinnuveganefnd þar sem verið er að uppfæra nákvæmlega það sem er verið að breyta núna en þetta varðar hugverkaréttindi vörumerkja. Þau verða núna lögfest á Íslandi. Undir því er ekki bara merkið heldur litur líka og svo bragð og lykt. Bragð og lykt mun heyra undir vörumerki.
Þá spyr maður: Hvernig lykt væri t.d. af Miðflokknum ef hann myndi notfæra sér þetta? Er það Old Spice? Kannski, þeir verða að drífa sig þannig að þeir fái þetta. Kannski verða Píratar fyrri til. Hvernig bragð er af vörumerki Vinstri grænna? Er það beiskt? Menn geta stokkið til en fáránleiki málsins er að undir vörumerkjum er samkvæmt þessu bæði lykt og bragð.
Við greiðum að sjálfsögðu atkvæði á móti.