150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

nauðungarsala.

762. mál
[17:55]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill taka fram áður en hann hleypir að næsta ræðumanni að búið er að rannsaka nefndarvísun 12. dagskrármálsins, frumvarps um leigubifreiðar, og það á að sjálfsögðu að ganga til umhverfis- og samgöngunefndar. Eru hér með tekin af tvímæli um það, en það var sem sagt rangt sem stóð í handriti forseta að málið ætti að ganga til atvinnuveganefndar.