150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

stuðningur við íþróttaiðkun barna vegna Covid-19.

763. mál
[19:00]
Horfa

Flm. (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Herra forseti. Við höfum hér í þingsal og í öðru starfi Alþingis á síðustu vikum, og er farið að telja mánuði, fjallað um hvert málið á fætur öðru sem vonir og væntingar standa til að muni aðstoða fólk, heimili og fyrirtæki í þeirri baráttu sem við eigum nú í í kjölfar Covid-faraldursins sem hefur farið ansi nærri því að lama efnahagslíf okkar.

Með þessari tillögu sem ég mæli hér fyrir er kastljósinu beint að íþróttum. Hún fjallar um stuðning við íþróttaiðkun barna vegna Covid-19 og að henni stendur þingflokkur Viðreisnar. Það er ekkert annað en asi sem ræður því að ekki var leitað meðflutnings annarra þingflokka en ég veit fyrir víst að málið nýtur stuðnings langt út fyrir þá sem á því eru. Mig langar til að lesa upp, eins og lög gera ráð fyrir, reyndar ekki lög en hefðin gerir ráð fyrir því, tillöguna sjálfa og útskýra nánar aðdraganda hennar og hvers við væntum með þessu. Tillagan hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra að veita styrk til íþróttaiðkunar fyrir hvert barn á aldrinum 6–18 ára sem búsett er á Íslandi. Styrkurinn verði í formi gjafabréfs“ — Hér varð ég að láta undan, ég hafði hugsað mér að nota orðið íþróttaávísun en var bent á það af mér yngra fólki að það væru komnar upp kynslóðir hér á landi sem þekkja ekki orðið ávísun. En það er seinni tíma mál og ég legg til að við tökum það upp síðar, því að það er mun betra orð að mínu mati.

„Styrkurinn verði í formi gjafabréfs að andvirði 25.000 kr. sem heimilt verði að nýta til greiðslu iðkendagjalda í skipulögðu íþróttastarfi hjá íþróttafélögum til 1. júní 2021. Ráðherrar veiti fjármagn í verkefnið og greiði íþróttafélögum um hver mánaðamót andvirði þeirra gjafabréfa sem félögin hafa tekið við þann mánuðinn.

Ráðherrar geri tillögu að nauðsynlegum breytingum á lögum og fjárlögum og leggi fyrir þing tímanlega svo að dreifa megi gjafabréfum fyrir lok maímánaðar 2020.“

Við vitum það öll og það hefur komið fram í umræðunni að íþróttafélög hafa líkt og svo margur annar félagsskapurinn og mörg önnur starfsemin staðið frammi fyrir því mikla verkefni núna að takast á við skerðingar á tekjum og starfsemi vegna Covid og eðlilega reynt að gera það án þess að það komi niður á starfi þeirra. Það hefur verið skoðað töluvert af stjórnvöldum og velferðarnefnd hvort leið sé til að koma starfsfólki íþróttafélaga, þjálfurum og þeim sem sjá um starfsemi annarra námskeiða, inn á hlutabótaleiðina. Staðreyndin er sú að það passar ekki þar inn af alls konar ástæðum, nema kannski ákveðnir starfsmenn íþróttafélaga sem eru í fullu starfi. Þjálfarar eru gjarnan hjá íþróttafélögum í einhvers konar hlutastarfi eða sem verktakar, ef svo má segja, svo það passar ekki inn í leiðina. Það breytir ekki þeirri staðreynd að fyrir íþróttafélögin í landinu er gríðarlega mikilvægt að halda ráðningarsambandi við nákvæmlega þessa starfsmenn vegna þess að við höfum borið gæfu til þess, með samstilltu átaki sem var ekkert einfalt mál, að setja viðmiðið mjög hátt þegar kemur að því að ráða inn starfsmenn til íþróttafélaga, þá starfsmenn sem við síðan sem foreldrar treystum fyrir íþróttauppeldi barna okkar og unglinga. Þetta er alla jafna mjög vel menntað fólk, það er reynslumikið og vinnur algjörlega frábært starf. Ég treysti mér til að fullyrða að óvíða er mikilvægara en akkúrat hjá íþróttafélögunum að viðhalda ráðningarsambandi við starfsfólk.

Við vitum líka að fjölmargar rannsóknir sýna fram á, ekki bara úti í hinum stóra heimi heldur búum við að háskólafólki, vel menntuðu, sem hefur rannsakað þetta hér á landi, að samband íþróttaiðkunar og andlegrar og líkamlegrar hreysti skiptir svakalega miklu máli. Það er drepið á það í greinargerðinni að skipulagt íþróttastarf hefur jákvæð áhrif á námsárangur, líðan og sjálfsvirðingu barna og ungmenna. Síðan hefur það forvarnagildi þegar kemur að drykkju og neyslu fíkniefna. Það er nær óumdeilanlegt, hygg ég, þannig að ég tel að við séum örugglega öll sammála um að gildi íþróttastarfs fyrir börn og unglinga er mjög mikið.

Þá erum við komin aftur að því sem þessi tillaga felur í sér. Í ljósi þess að við vitum að tekjusamdráttur hjá fjölmörgum heimilum, sem er orðinn og er fyrirsjáanlegur, því miður, á næstu mánuðum og jafnvel yfir lengra tímabil, mun gjarnan koma niður á því sem fólk getur neitað sér um. Ef valið stendur á milli þess að greiða áfram af húsnæði, greiða fyrir mat og aðrar nauðsynjar þá er, því miður, íþrótta- og tómstundaiðkun eitt af því sem einhverjir munu þurfa að láta sitja á hakanum. Við búum líka við það að í sumar verða börn og unglingar heima, þau verða hér á Íslandi eins og við fullorðna fólkið. Það er ómetanlegt að geta leitað í smiðju íþróttafélaganna okkar eftir námskeiðum og öðru tómstundastarfi sem getur stytt stundirnar. Til þess þarf fólk að hafa efni á því og geta greitt fyrir og náttúrlega að íþróttafélögin fái greiðslu til að geta boðið upp á þjónustuna. Ef við ætlum ekki að láta þetta ástand sem við stöndum frammi fyrir núna verða annars vegar til þess að börn og unglingar missi þennan mikilvæga þátt úr lífi sínu og að íþróttafélögin missi gríðarlega mikilvægar tekjur þurfum við að grípa til einhverra ráðstafana af þessum toga.

Þetta er ekki eini tekjumissirinn sem íþróttafélögin standa frammi fyrir. Það eru auglýsingatekjur, það eru mótin sem eru í fullkominni óvissu. Mjög mörg íþróttafélög framfleyta sér árið um kring á tekjum sem koma inn af einu, tveimur, þremur, stórum mótum yfir sumarið. Þessar tekjur koma ekki.

Ég er mjög meðvituð um að í fjárauka þeim sem Alþingi samþykkti fyrir helgi eru 600 millj. kr. sem verður varið til sveitarfélaga í því skyni að veita styrki til tekjulágra heimila svo að börn geti stundað íþróttir og aðrar tómstundir í sumar, eins og það er orðað. Það er gott og vel. Það er að mínu mati ekki nándar nærri nóg, auk þess sem það er óútskýrt hvernig fjárhæðinni verður skipt, annars vegar á milli íþrótta og hins vegar annarra tómstunda og menningarstarfsemi af ýmsum toga sem nefnd er í greinargerð og í umfjöllun sem verið hefur um málið. Hvað situr eftir? Þá er líka óútkljáð hvernig þessu er skipt, hvort það er milli sérsambanda eða fari beint til íþróttafélaganna eða hvernig þetta hríslast niður.

Það sem þessi tillaga hefur fram yfir er tvennt: Annars vegar er þetta hærri fjárhæð eftir því sem fleiri nýta sér þetta, en stóra málið er að þetta er peningur sem fer beint til þeirra unglinga og barna sem vilja nýta sér styrkinn, fer beint frá þeim í íþróttafélagið. Enginn milliliður, það er engin önnur leið að nota þetta. Ef maður reiknar út heildarkostnaðinn þá eru hér á landi um 60.000 börn og unglingar á aldrinum 6–18 ára og ef allir þessir einstaklingar nýta sér gjafabréfið upp á 25.000 kr. er heildarkostnaðurinn 1,5 milljarðar. Árið 2018 voru ríflega 40.000 börn, á þessum aldri, iðkendur hjá íþróttafélögum eða u.þ.b. 70%. Ef við förum í þá útreikninga erum við að tala um ríflega milljarð. Það er klárlega gríðarlega mikill peningur. En þetta er peningur sem fer ekki í einhverja óskilgreinda hít. Við munum vita nákvæmlega í hvað hann nýtist, gagnast fjölskyldum, börnum og unglingum og íþróttafélögum. Ef gjafabréfið er ekki nýtt þá fellur það niður.

Auðvitað myndi ég segja og get fært mjög sannfærandi rök fyrir því að best af öllu væri fyrir samfélagið ef allir nýttu sér þetta, það væri minnsti samfélagslegi kostnaðurinn fólginn í því, en það er engu að síður þannig að ef gjafabréfið er ekki nýtt þá fellur það niður. Við þekkjum gildi íþróttaiðkunar fyrir andlegt og líkamlegt heilbrigði og þar með gildir það fyrir samfélagið í heild.

Ég er alveg viðbúin því að það verði töluverð umræða um upphæðir, ef málið kemst lengra, sem ég vona náttúrlega, annars vegar um 25.000 kr. og hins vegar um heildina. Ég er alveg til í þá umræðu og hlusta á rök bæði í þá átt að þetta eigi að vera hærra eða lægra. En ég er algerlega sannfærð um að útdeiling fjármagns á þennan hátt, með íþróttaávísun eða gjafabréfi, eftir því hvaða kynslóð maður tilheyrir, sé langbesta leiðin til að koma til móts við þá stöðu sem börn og unglingar eru í og tryggja eins og kostur er að íþróttafélögin okkar, þessi gimsteinn sem þau eru, haldi áfram að vera sá öflugi þátttakandi sem þau eru í lífi og starfi fjölmargra unglinga og barna. Þið sjáið það, 70% barna á aldrinum 6–18 ára stunda íþróttir í skipulagðri íþróttastarfsemi. Það er ekkert smáræði og það er mjög kostnaðarsamt að missa þetta niður.

Herra forseti. Ég óskaði eftir því að málinu verði vísað til allsherjar- og menntamálanefndar og ég hef miklar væntingar um að það verði tekið vel í málið.