150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga.

717. mál
[19:12]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Við Íslendingar eigum að leggja okkar af mörkum vegna flóttamannavandans sem við þekkjum öll svo vel, og þá sérstaklega Evrópuþjóðir. Við getum ekki skorast undan því. En framlag okkar mun ávallt takmarkast af stærð og styrk, þannig er það bara. Að mínum dómi eigum við að fylgja svipuðu fyrirkomulagi, hvað alþjóðlega vernd varðar, og viðhaft er annars staðar á Norðurlöndunum, hjá þeim þjóðum sem við berum okkur gjarnan saman við.

Umræðan um þennan málaflokk hefur tilhneigingu til að verða óvægin og þá helst þegar rætt er um tilhæfulausar umsóknir um alþjóðlega vernd. Auk þess getur hún orðið tilfinningaþrungin einkum þegar börn eiga í hlut. Nú upp á síðkastið hefur umræðan töluvert snúist um það hvað teljist örugg ríki og hvað ekki, þ.e. þegar þeir sem koma hingað til lands og óska eftir alþjóðlegri vernd hafa fengið hana annars staðar. Breytingin sem mælt er fyrir í frumvarpinu mun gera það að verkum að fólk sem kemur hingað frá löndum sem það hefur þegar fengið vernd í mun fá sjálfkrafa höfnun á vernd hér á landi.

Við erum öll sammála um að gæta að mannréttindum og við erum öll sammála því að mannúð og mildi í þessum málaflokki er einnig nauðsynleg. Við erum öll sammála um að við eigum að aðstoða þá sem þess þurfa á erfiðum stundum. Ég geri líka ráð fyrir því að við séum öll sammála um að ekki sé ásættanlegt að sumir nýti sér þetta kerfi með tilhæfulausum umsóknum með tilheyrandi töfum fyrir þá sem raunverulega þurfa á aðstoð og úrlausn að halda. Rétt er að minna á að umræðan um þetta vandamál var mikil í fjölmiðlum fyrir þremur árum. Þá var t.d. haft eftir þáverandi forsætisráðherra, Bjarna Benediktssyni, um tilhæfulausar umsóknir, að reynsla stjórnvalda í öðrum löndum væri sú að mikilvægt væri að beita samræmdri túlkun reglnanna því að annars væri þeirri hættu boðið heim að við fengjum yfir okkur aukinn fjölda hælisumsókna sem annars staðar yrði hafnað og að um leið drægi þetta úr getu okkar til að hjálpa þeim sem þyrftu raunverulega á skjóli að halda.

Við getum væntanlega öll verið sammála um að á sama tíma og við viljum aðstoða þá sem þess þurfa sé í raun óásættanlegt að fjöldi einstaklinga hafi nýtt sér kerfi okkar Íslendinga að óþörfu með tilheyrandi kostnaði fyrir ríkissjóð og tafið afgreiðslu mála sem virkilega þurfa að fá úrlausn, beinlínis misnotað kerfið sem hefur þá einnig kostað, eins og ég segi, skattgreiðendur mikla peninga, peninga sem hefði verið hægt að nýta til að hjálpa þeim sem eru í raunverulegri þörf eða í almannatryggingakerfið almennt. Það mætti stundum halda að þetta sé eitthvert séríslenskt vandamál. Raunveruleikinn er vissulega ekki þannig. Það er fjöldi dæma þessa efnis frá öðrum löndum og sum þeirra sýna umfang vandans.

Við sjáum t.d. skilaboð frá norskum stjórnvöldum. Norsk stjórnvöld eru með auglýsingu í formi myndbands á helstu netmiðlum, Facebook o.fl., um þær reglur sem gilda í þessum efnum í Noregi. Yfirskrift auglýsingarinnar er: Hvers vegna að hætta lífi þínu?

Þar segir:

„Ertu að yfirgefa landið þitt í leit að betri lífskjörum? Ertu að yfirgefa landið þitt í leit að vinnu? Þetta eru ekki löglegar ástæður fyrir því að fá alþjóðlega vernd í Noregi. Þér verður vísað til baka.“

Áfram segir:

„Margir hafa týnt lífi eða verið misnotaðir á leið sinni til Evrópu. Síðan 2014 hafa meira en 10.000 manns látið lífið á leið sinni yfir Miðjarðarhafið. Hvers vegna að hætta lífinu og eyða sparnaði þínum í að borga smyglurum þegar þú færð ekki leyfi til að vera í Noregi?“

Þetta er auglýsing sem norsk stjórnvöld birta á helstu netmiðlum.

Síðan má finna aðra auglýsingu frá norskum stjórnvöldum þar sem fjallað er um hertar kröfur hvað varðar alþjóðlega vernd í Noregi. Þar er þess getið að mörg þúsund manns, sem hafi sótt um alþjóðlega vernd, hafi verið vísað frá landinu á undanförnum árum og að reglur hafi verið hertar árið 2016. Norsk stjórnvöld koma því sem sagt mjög vel á framfæri á öllum helstu netmiðlum að þeir sem þangað koma í leit að alþjóðlegri vernd og þurfa ekki verndina fái ekki hæli. Þau geta þess t.d. að þau hafi gert samning við Tyrkland um að öllum þeim sem koma þaðan verði vísað til baka.

Í norskri skýrslu sem kom út árið 2015 kemur fram að að landamærum Noregs og Rússlands komu 5.500 hælisleitendur á nokkrum vikum. Málið vakti mikla athygli í Noregi og víðar og varð til þess að reglum þar var breytt og þær hertar. Erum við viðbúin því að fá slíkan fjölda umsókna á fáeinum vikum? Það gæti alveg gerst. Og hvernig ætlum við að bregðast við? Ætlum við að skoða mál hvers og eins óháð því hvort viðkomandi hafi þegar fengið hæli í öðru landi? Við munum líka öll eftir fjölda þeirra sem sóttu um hæli í Evrópu eins og fram hefur komið í fréttum lengi vel.

Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að við framkvæmd á útlendingalögum hafi komið í ljós að lagfæra, endurskoða og breyta þurfi allmörgum ákvæðum laganna svo að framkvæmd þeirra og málsmeðferð þeirra mála sem undir þau falla sé skýr og gegnsæ. Þá segir:

„Á meðal þeirra álitaefna sem fram hafa komið eru atriði sem snerta forgangsmeðferð bersýnilega tilhæfulausra umsókna …“

Í greinargerðinni kemur einnig fram að mikil fjölgun hafi orðið á umsóknum árið 2016 frá ríkisborgurum landa sem hafi verið skilgreind sem örugg upprunaríki og umtalsverður fjöldi frá öðrum ríkjum þar sem fyrir liggur að almennt er engin ástæða til að flýja ofsóknir.

Áfram segir:

„Á árinu 2017 hélt þessi þróun áfram og þegar leið á árið var fjöldi umsækjenda um alþjóðlega vernd á Íslandi orðinn einn sá mesti í Evrópu og langmestur á Norðurlöndum, miðað við höfðatölu, þrátt fyrir legu landsins.“

Ég veitti einnig athygli lýsingu í greinargerðinni:

„Í kjölfar fordæmalausrar fjölgunar umsókna ríkisborgara öruggra upprunaríkja hér á landi kom í ljós að íslenskt verndarkerfi er að mörgu leyti berskjaldað fyrir ásókn þeirra sem senda inn bersýnilega tilhæfulausar umsóknir og annarra umsækjanda sem almennt má telja að séu ekki í þörf fyrir alþjóðlega vernd. Vegna fjölgunar umsækjenda frá öruggum upprunaríkjum lögðu stjórnvöld áherslu á hraðari afgreiðslu þessara mála með því að styrkja forgangsmeðferð bersýnilega tilhæfulausra umsókna. Með það að markmiði að auka skilvirkni og draga úr fjölda umsókna sem þessara var reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 breytt með reglugerð nr. 775/2017. Þar var m.a. mælt fyrir um sérstaka málsmeðferð, þ.e. forgangsmeðferð bersýnilega tilhæfulausra umsókna, sem átti að stytta málsmeðferðartíma. Eftir gildistöku reglugerðarinnar mat kærunefnd útlendingamála það svo að ákveðin ákvæði umræddrar reglugerðar hefðu ekki fullnægjandi lagastoð og hefur henni því ekki verið beitt að fullu. Því er talin ástæða til að færa efni hennar að hluta inn í lögin sjálf. Aðgerðir stjórnvalda til að draga úr fjölda bersýnilega tilhæfulausra umsókna báru verulegan árangur. Ríkisborgurum frá öruggum ríkjum sem sóttu um alþjóðlega vernd hérlendis fækkaði mjög á síðari hluta ársins 2017 og umsækjendum um alþjóðlega vernd á framfærslu hér á landi fækkaði úr rúmlega 700 manns í ársbyrjun 2017 í rúmlega 400 þegar kom fram á árið 2018.“

Lítum aðeins á stöðuna í dag:

„Að undanförnu hefur hins vegar á nýjan leik fjölgað í þeim hópi sem hér bíður niðurstöðu meðferðar umsókna sinna um alþjóðlega vernd. Á árinu 2019 hafa að meðaltali um 600 einstaklingar þegið þjónustu meðan þeir bíða úrlausnar sinna mála eða endursendingar til annars ríkis. Nú er svo komið að stjórnsýslan ræður ekki við að afgreiða umsóknir innan ásættanlegs tíma og kostnaður við framfærslu umsækjenda um alþjóðlega vernd eykst hratt. Í grunninn má segja að fyrir því séu tvær meginástæður. Í fyrsta lagi hefur fjölgað nokkuð í hópi þeirra sem hingað leita eftir vernd frá stríðshrjáðum löndum, ekki síst Írak og Afganistan. Í öðru lagi hefur þeim sem sækja hér um alþjóðlega vernd fjölgað umtalsvert á ný þrátt fyrir að vera ekki á flótta undan ofsóknum í sínu upprunaríki. Í síðarnefndum hópi er í fyrsta lagi fólk frá öruggum upprunaríkjum, í öðru lagi fólk sem ber samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni að sækja um og fá niðurstöðu um sínar umsóknir um vernd í öðru Evrópuríki eða hefur jafnvel þegar sótt um alþjóðlega vernd í öðru Evrópuríki og í þriðja lagi fólk sem þegar hefur fengið stöðu flóttamanns í Evrópu en kýs að koma hingað til lands og sækja um alþjóðlega vernd á nýjan leik. Ástæða þykir til að bregðast við þessari fjölgun með því að einfalda málsmeðferð umsókna þegar umsækjandi hefur þegar hlotið alþjóðlega vernd svo að auka megi skilvirkni og stytta málsmeðferðartíma.“

Herra forseti. Þetta hlýtur að vera skynsamleg nálgun. Í umræðunni um þetta mál hefur komið fram, hjá tveimur eða þremur hv. þingmönnum, að hugtakið skilvirkni sé eitthvað af hinu verra í málaflokki sem þessum, eða þannig skildi ég alla vega málflutning þeirra. Þá spyr maður sig hvort það sé ekki einmitt mjög mikilvægt að staðfesta og skilvirkni ríki í málaflokki sem þessum svo að þeir sem virkilega þurfa verndina fái hana og það sé fyrir fram vitað að hverju er gengið þegar sótt er um alþjóðlega vernd hér á landi, eins og Norðmenn hafa auglýst svo rækilega hjá sér og ég greindi frá hér fyrr.

Eins og fram kemur er frumvarp þetta liður í því að gera stjórnvöldum kleift að afgreiða skjótt og örugglega umsóknir sem almennt leiða ekki til veitingar alþjóðlegrar verndar með því að draga úr fjölda slíkra umsókna. Er það grundvallarforsenda þess að stjórnvöld hafi rými til að beina athyglinni að þeim hópi umsækjenda sem er í raunverulegri þörf fyrir vernd og verndarkerfið er hannað fyrir.

Ég vil taka undir þetta í frumvarpi hæstv. dómsmálaráðherra og rétt er að benda á að það hefði verið ábyrgðarhluti að bíða með framlagningu þessa frumvarps. Þróun þessa málaflokks er í óvissu, sérstaklega í ljósi veirufaraldursins. Þó að dregið hafi úr komu til landsins í dag vitum við ekki hvernig þessi mál koma til með að þróast þegar ferðafrelsi fer á fullt á ný. Það hefur vissulega getað haft þau áhrif, og mun væntanlega hafa þau áhrif, að flóttamannastraumurinn mun jafnvel aukast.

Herra forseti. Ég fer að ljúka máli mínu. Ég vil þó segja að það kerfi sem við höfum sett upp hefur verið misnotað. Og það er verið að misnota það. Það þekkist víða um lönd og þess vegna herða lönd eins og Noregur reglurnar. Hingað til lands kemur fólk í gegnum þetta kerfi sem síðan er misnotað af öðru fólki, t.d. í vændi, misnotað af fólki sem hafði milligöngu um að það kæmi hingað. Hingað kemur fólk í gegnum þetta kerfi til að reyna að fá vinnu og fær hana jafnvel í gegnum svarta hagkerfið svokallaða, það er misnotkun. Löggjafinn verður að bregðast við þessu. Það er okkar ábyrgðarhluti og skylda. Ég hef rakið þetta í umræðunni í andsvari við hæstv. ráðherra. Við höfum þessar upplýsingar frá ríkislögreglustjóra og þetta eru ekki neinar getgátur. Þetta eru staðreyndir.

Það er reynt að misnota margvíslega hluti. Við vitum það. Það er reynt að misnota ríkissjóð. Við sjáum það núna bara í hlutabótaleiðinni. Bótakerfi almannatrygginga er misnotað, það er þekkt um allan heim. Um 1% þeirra sem nýta kerfið þurfa ekki á því að halda. Þess vegna er eftirlit með þessum hlutum mikilvægt. Ég held hins vegar að hér á landi sé það frekar veikt í samanburði við önnur lönd. Sviss er t.d. með sérstaka löggjöf og sérstaka eftirlitsaðila sem vinna eingöngu að því að uppræta bótasvik og sama er í Bretlandi.

Herra forseti. Ég tel að í frumvarpinu sé verið að bregðast við sameiginlegu vandamáli sem ekki er skynsamlegt að sé óskýrt. Gleymum því ekki að okkur fannst fjöldinn mikill sem hingað kom og fjallað er um í greinargerðinni. Það hafði þær afleiðingar að allt kerfið fór á hliðina og það kemur fram í greinargerðinni að svo virðist sem um sé að ræða breytingu aftur í þessa átt. Það er áhyggjuefni. Ef ekkert er að gert má búast við að fjöldinn verði miklu meiri í framtíðinni og þá lamist kerfið algerlega. Gleymum því ekki að kerfið er fyrir þá sem þurfa vernd. Við þurfum að vera með þannig skipulag á Íslandi í þessum málaflokki að það ríki staðfesta og geta, að þeir sem þurfa sannarlega vernd fái hana og þá aðstoð sem henni fylgir.