útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga.
Forseti. Mig langar að spyrja þingmanninn út í afmarkaðan þátt, þ.e. þegar málið snýst um barn sem sannarlega er á flótta. Tökum sem dæmi barn sem hefur fengið staðfesta stöðu flóttamanns í Grikklandi, þar sem við vitum að ástandið er ekki börnum bjóðandi, og það kemst hingað til Íslands. Er þingmaður meðvitaður um hvað þær breytingar sem verið er að leggja til í þessu frumvarpi hafa í för með sér á réttarstöðu þeirra barna sem eru á flótta? Byrjum bara á því, hvort hann sé meðvitaður um það. Ég trúi ekki öðru en að hv. þingmaður vilji taka það sérstaklega til skoðunar og passa að þetta frumvarp fari ekki í gegnum þingið án þess að það sé gulltryggt að við sendum ekki börn sem eru á flótta út á gaddinn og guð. Nú veit ég að hv. þingmaður hefur játað kristna trú. Hvernig sér hann það í þessu máli, í því samhengi, hvernig kristinn maður ætti að hegða sér þegar kemur að börnum sem sannarlega eru á flótta?