útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar spurningar sem hann beinir til mín og er ljúft og skylt að svara þeim. Það eru fjölmargar breytingar í frumvarpinu, m.a. varðandi fjölskyldusameiningar stjúpbarna og aðrar sem taka til hinna ýmsu atriða. En hér er verið að ræða aðallega breytinguna sem er á verndarmálunum í frumvarpinu. Það er auðvitað þannig að þegar útlendingalöggjöfin var samin var barnasáttmálinn hafður til hliðsjónar og hann er leiðarljós í málsmeðferð Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála. Ef barn fær vernd en foreldrar ekki þá fær fjölskyldan alþjóðlega vernd. Staða barnsins er alltaf metin sér. Börn fá skriflega rökstudda ákvörðun í máli sínu, eftir atvikum frá bæði Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála, og við framkvæmd laganna er lögð áhersla á mikilvægi þess að tryggja einingu fjölskyldunnar. Almennt hefur verið lagt til grundvallar að hagsmunum barns sé best borgið með því að eining fjölskyldunnar sé tryggð. Samt sem áður er barnasáttmálinn hafður að leiðarljósi í málsmeðferðinni. Við lítum auðvitað líka til annarra landa sem fara þessa leið varðandi verndarmál og eru ekki að hætta endursendingum, m.a. til Grikklands, sem við tókum ákvörðun um á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, þar sem við erum að tala um fólk sem er ekki komið með neina vernd eða nein réttindi. Það er í samræmi við önnur lönd sem einnig eru auðvitað aðilar að barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Síðan er sérstaklega til skoðunar í ráðuneytinu, og það var að frumkvæði mínu, að unnin yrði sérstök skýrsla um málefni barna á flótta en einnig að skoða sérstaklega bætta stöðu og þjónustu við fylgdarlaus börn og ungmenni sem hingað koma þar sem við getum gert betur nú þegar og þurfum að gera betur ef við ætlum að játa því og taka við fleirum. Við getum ekki bundið okkur við slíkar ákvarðanir nema við gerum það vel og það ferli er ég allt að skoða og það varðar auðvitað börn og ekki síst (Forseti hringir.) hvað er barni fyrir bestu. En ég (Forseti hringir.) kemst kannski ekki að fleiri atriðum í fyrra andsvari mínu.