150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga.

717. mál
[20:05]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er ýmislegt sem hv. þingmaður kom inn á. Kannski fyrst aðeins varðandi það af hverju þetta frumvarp er komið hér nú eins og svo mörg önnur sem voru tilbúin fyrir Covid-tíma. Það eru þó fleiri breytingar í því en sú eina sem hv. þingmaður ræddi um í allri sinni ræðu. Það eru margar breytingar þarna er varða alþjóðlegar skuldbindingar okkar varðandi Schengen og eru komnar í tímaþröng og ég vildi bara flagga því af því að hv. þingmaður situr í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Það má síðan nefna breytingar eins og aukin atvinnuleyfi fyrir sérfræðinga sem missa vinnuna og geta þá fengið hér aukinn tíma, aukið atvinnuleyfi fyrir þá sem fá mannúðarvernd og aukin dvalarleyfi fyrir þá sem eru hér í vistráðningu, au-pair og annað slíkt, sem ég held að væri mjög mikill fengur í að afgreiða.

Hv. þingmaður ræddi skilvirknina og ég var orðin ansi hrædd um að við værum ósammála um hana, en síðan sagði hann að mannúð og skilvirkni væru ekki andstæður. Þar er ég nefnilega hjartanlega sammála hv. þingmanni. Skilvirknin er nefnilega ekki bara í neikvæðum málum sem leiða ekki til alþjóðlegrar verndar heldur eru hér mál sem verða nú forgangsmál í meðförum Útlendingastofnunar og leiða til jákvæðrar niðurstöðu á einungis 4–17 dögum. Það er vel. Það þýðir að aðilar sem koma hingað geta fengið jákvæða niðurstöðu mjög hratt. Árið 2019 fékk 531 einstaklingur alþjóðlega vernd og aldrei nokkurn tímann hafa fleiri fengið vernd hér á landi. Þeir eiga einnig rétt á hraðari málsmeðferð til að geta átt meiri möguleika á að komast hraðar inn í samfélagið og í öryggi.

Síðan var ég afar sátt að heyra hér lokakafla í ræðu hv. þingmanns um vinnufúsar hendur. Það er ánægjulegt að heyra það af því að ég hef mikinn áhuga á því hvort ekki væri hægt að skoða atvinnuleyfin, sem heyra vissulega undir félags- og barnamálaráðherra, og hvort þeir sem koma hér, hvort sem þeir eru með vernd í öðru ríki (Forseti hringir.) eða frá þriðja ríki og hafa áhuga á að vinna, ættu ekki að hafa ríkari rétt til þess (Forseti hringir.) í stað þess að koma inn í verndarkerfið okkar. Ég vil spyrja hvort við hv. þingmaður séum ekki sammála um slíkar breytingar.