150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga.

717. mál
[20:50]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að koma inn á nokkur atriði sem hv. þingmaður kom inn á. Hv. þingmaður segir hér að með þessu frumvarpi sé í auknum mæli verið að senda fólk til baka. Langstærstur hluti þessara mála fær neikvæða niðurstöðu í dag, yfir 80% að ég held, og markmiðið er að reyna að flýta þeim málum sem fá neikvæða niðurstöðu til að geta einnig flýtt þeim málum sem fá jákvæða niðurstöðu og bíða allt of lengi í kerfinu. Hér erum við bara með kerfi og við þurfum einmitt að finna, eins og hv. þingmaður segir réttilega, hvar línan er dregin. Ekki fáum við aukna fjármuni í kerfið eins og staðan er núna. En hvernig ætlum við að gera betur fyrir það fólk sem er að koma hingað og hvernig ætlum við að svara fyrr þeim einstaklingum sem biðu í marga mánuði eftir alþjóðlegri vernd? Það er líka svo að ekkert Evrópuland er ekki að senda verndarmál aftur til Grikklands. Ekkert Evrópuland hefur tekið slíka ákvörðun. Við höfum vissulega tekið stóra ákvörðun um Covid-mál sérstaklega þar sem við vildum gera sérstaklega vel og höfum líka ákveðna tímaramma og ákveðna ramma í okkar löggjöf sem mörg önnur lönd hafa ekki. Þessi mál falla á tíma og okkur þykir ákveðinn tími ómannúðlegur ef við höfum ekki svarað og það höfum við verið sammála um. En hér eru hlutfallslega flestar umsóknir um alþjóðlega vernd á Norðurlöndum.

Breytingin sem hv. þingmaður talaði einungis um í ræðu sinni, sem er aðeins eitt ákvæði í þessu frumvarpi sem felur nú margt fleira í sér, er byggð á Norðurlöndum, sérstaklega Noregi, en svipað umhverfi getum við séð alls staðar annars staðar varðandi þessi verndarmál í Evrópu. En málið er komið (Forseti hringir.) til þinglegrar meðferðar og hún er auðvitað til þess að málið sé skoðað og nefndin leggur þá lokahönd á málið með (Forseti hringir.) einhverjum breytingartillögum. En það er ekki í mínum höndum lengur. Ég (Forseti hringir.) kem með það í þinglega meðferð og vona að sú þinglega meðferð verði góð.