150. löggjafarþing — 102. fundur,  12. maí 2020.

um fundarstjórn.

[14:09]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég finn mig knúna til að koma hingað upp vegna ræðu hv. þm. Ólafs Þórs Gunnarssonar hér áðan undir liðnum um störf þingsins þar sem hann sagði mig hafa sagt í fjölmiðlum og á Facebook-síðu að það væri enginn vilji hjá meiri hlutanum til að breyta lögunum og það væri ósatt. Það hef ég hvergi sagt. Svo ég vísi í það sem ég hef tjáð mig um þetta, þá segi ég um það frumvarp sem ég var að reyna að fá hv. velferðarnefnd til að flytja, með leyfi forseta:

„Þetta frumvarp sem hér um ræðir er bara tvö lítil ákvæði. Það er einfalt og tilbúið. Við erum búin að láta fara yfir það af sérfræðingum og það stendur og við gætum farið með það inn í þingsal á morgun og klárað það á morgun. En það er því miður enginn vilji til þess af hálfu ríkisstjórnarinnar, segir Helga.

Hún segir að málið komi sér afar spánskt fyrir sjónir. „Mér finnst þetta svo skrítið. Því þetta gæfi Vinnumálastofnun heimild til að (Forseti hringir.) krefja fyrirtæki um endurgreiðslur og hún gæti verið til komin frá og með þeim degi sem lagaákvæðið tekur gildi, sem hlýtur að vera eitthvað sem við viljum.““ (Forseti hringir.)

Það er nákvæmlega þetta, herra forseti. Meiri hlutinn vildi ekki gefa Vinnumálastofnun færi á endurkröfu frá og með deginum í dag.