um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Vegna þessa dæmalausa fundar velferðarnefndar í gær verð ég bara að segja alveg eins og er að stundum gæti maður haldið að maður væri staddur í einhverju leikhúsi fáránleikans. Þetta var ósköp einfalt mál. Formaðurinn var að leggja fram tillögu um að nefndin stæði saman um að sjá til þess að stoppa það sem var í gangi í sambandi við fyrirtæki. Þetta kom næsta frumvarpi sem ráðherra var að undirbúa ekki við. Þetta var bara til að bregðast við ástandinu eins og það er núna. Að geta þvælt málinu fram og til baka út í þá vitleysu sem það fór í í gær er okkur til háborinnar skammar. Við í nefndinni áttum bara að standa saman og okkur ber skylda til að sjá til þess að svona hlutir gerist ekki og girða fyrir þá eins fljótt og við getum.