150. löggjafarþing — 102. fundur,  12. maí 2020.

um fundarstjórn.

[14:25]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég mátti til með að koma upp og taka undir með hv. þm. Andrési Inga Jónssyni. Það er einmitt ekki tímasóun að þingmenn taki að sér að lagfæra stóran galla á aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar. Það er bara alls ekki tímasóun. Ég held hins vegar að það sem reki meiri hlutann áfram í þessu sé einfaldlega hver kemur fram með þessa tillögu. Það er það sem skiptir mestu máli. Ég á þetta, ég má þetta. Það hefur verið viðkvæðið í gegnum allar þessar aðgerðir og ég held að það hljóti líka að vera hvatinn á bak við þessa framkomu hér og nú, rétt eins og fyrri daginn.