dómstólar o.fl.
Herra forseti. Ég vil í byrjun fagna mjög þessu frumvarpi og því sem unnið hefur verið. Það er mjög mikilvægt að við komum hér á endurupptökudómstól til að réttarfarið sé í föstum skorðum og við séum ekki að láta einhverja nefnd taka ákvörðun um endurupptöku dóma. Ég fagna líka þeirri breytingu sem nefndin gerir á frumvarpinu sem snýr að því að fleira en dómar utan úr heimi geti komið til endurskoðunar, að það sé ekki bara dómar heldur geti fólk líka leitað endurupptöku þegar úrskurðir o.fl. eru undir.
Það sem mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann um er varðandi gjafsóknina. Mér sýnist vera ákveðinn misskilningur á ferð varðandi gjafsóknina þarna sem mig langar að spyrja hv. þingmann út í. Það er látið eins og það kosti ekkert að leita réttar síns fyrir endurupptökudómstól og að það sé óþarfi að veita gjafsókn í þeim málum af því að sá sem leitar réttar síns þar og biður um endurupptöku þarf væntanlega að hafa með sér lögmann. Ég átta mig ekki á rökunum fyrir því að ekki sé hægt að fá gjafsóknarleyfi þegar leitað er til endurupptökudómstóls.