dómstólar o.fl.
Herra forseti. Ég stökk fram til að skoða frumvarpið af því að einhvers staðar í því kemur fram að almennar reglur einkamálalaganna gildi ekki hvað varðar gjafsóknir þegar kemur að Endurupptökudómi. Það var aðeins rætt um þetta á fundi nefndarinnar og ég var svo heppin að fá að sitja einmitt þann fund af því að ég hefði talið að eðlilegt væri að almennar reglur um gjafsókn ættu einmitt að eiga við í þessum málum eins og öðrum. Almennar reglur um gjafsókn eru svo þröngar að viðkomandi má ekki hafa meira en 308.000 kr. á mánuði til þess að geta fengið gjafsóknarleyfi og hjón geta samanlagt ekki haft meira en rúmar 460.000 kr. á mánuði til að geta fengið gjafsókn. Það er alveg augljóst að þeir sem hafa slíkar tekjur eru í þörf fyrir stuðning til þess að geta leitað réttar síns og eftir að hafa gengið alla þessa leið, héraðsdóm, Landsrétt, mögulega Hæstarétt en alla vega Landsrétt, og svo mögulega fyrir erlendum dómstólum, þykir mér harkalega farið ef menn eiga ekki að geta óskað eftir endurupptöku á dómi sem fyrir liggur að er búið að segja að hafi á einhvern hátt verið annmörkum háður, ekki leitað réttar síns eftir alla þessa leið þegar heim er komið af því að þeir hafa ekki ráð á því, af því að ekki fæst stuðningur frá ríkinu. Mér þætti gott ef hv. þingmaður gæti bent mér á ef ég er að misskilja frumvarpið en mér sýndist svona vera um hnútana bundið.