dómstólar o.fl.
Herra forseti. Ég held að það sé rétt að við skoðum þetta í nefndinni milli umræðna en ég held hins vegar að við megum ekki gleyma því að það er almenna reglan að menn eigi að bera sinn kostnað sjálfir. Það er auðvitað um það að ræða líka að hafi menn sigur í dómsmáli þá fá þeir að jafnaði málskostnað eða hluta hans greiddan. Ég held að við verðum að hafa þau sjónarmið í huga. Bara til að skýra þetta og við séum nokkuð samstiga áður en við afgreiðum þetta frumvarp eða alla vega samstiga um skilning á þessu þá legg ég til að við skoðum þetta í nefndinni milli 2. og 3. umr. En ég vildi bara árétta það sjónarmið að mér finnst ekki alveg sjálfgefið að endurupptaka mála gefi heimild til gjafsóknar. Ég held að það þurfi að vera ákveðin ábyrgð á mönnum að taka afstöðu til þess hvort þeir eiga líkur á því að ná rétti sínum fram eða ekki. Málskostnaðarákvarðanir eiga síðan að ráða því hvar kostnaðurinn fellur endanlega. En eins og ég segi, til að ná sameiginlegum skilningi hvað þetta tiltekna atriði varðar þá legg ég til að við tökum þetta aftur inn í nefndina milli umræðna.