150. löggjafarþing — 102. fundur,  12. maí 2020.

dómstólar o.fl.

470. mál
[18:09]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Þetta er áhugaverð umræða sem hér er farin af stað. Mér þykir hún varpa ljósi á geðþóttavald forseta í samhengi við þessa ákvörðun, að það sé háð mati forseta hverju sinni hvort hv. þingmenn fái að nýta sér andsvararétt gagnvart samþingmanni sínum í þingflokki eður ei. Þetta finnst mér ekki góð staða, virðulegur forseti. Það er algjörlega að hæstv. forseta ólöstuðum vegna þess að það er í raun hæstv. forseti sem hefur setið undir ámæli fyrir að vera ekki alls kostar jafn vígur gagnvart öllum þingmönnum, og er ég þá að vísa í hæstv. forseta Steingrím J. Sigfússon. (Gripið fram í.) Þannig að þá er bagalegt ef reglurnar eru ekki skýrar og þær eru háðar geðþóttavaldi forseta sem ekki allir þingmenn treysta.