dómstólar o.fl.
Forseti vill af þessu tilefni taka fram að sú breyting sem gerð var á þingsköpum, eftir nokkrar umræður sem urðu um ákveðið mál síðastliðið vor, var með þeim hætti að forseta væri ekki heimilt að veita samþingmönnum, þ.e. þingmönnum úr sama stjórnmálaflokki, leyfi til að fara í andsvör hvor við annan nema sýnt þætti að þeir væru á öndverðum meiði. Það er vissulega nokkuð örðugt að komast að því hvort þingmenn séu virkilega á öndverðum meiði ef maður sér þá ekki t.d. í slagsmálum hér frammi eða grettandi sig framan í einhvern annan. En í þessu tilfelli ákvað forseti að túlka þessa reglu nokkuð rúmt, líka vegna þess að hann lítur ekki svo á að hér sé um tilraun til málþófs að ræða, og leyfa þessi andsvör.