dómstólar o.fl.
Forseti. Ég er að renna yfir þetta mál í fyrsta skipti. Ég er ekki í nefndinni sem er að vinnur fyrir málið en það er mjög áhugavert. Ég er sammála hv. þingmanni um að það væri að sjálfsögðu miklu betra að þær reglur sem gilda um skipan dómara og hæfismat og slíkt myndu fylgja. Það eru þessir þrír embættisdómarar, ef það væri ekki dómstólasýslan, eins og segir þarna, sem ákveður hvernig það sé; jafnvel bara valið af handahófi af þeim sem sitja í Hæstarétti, einn valinn af handahófi. Ég held að það væri farsælli leið. Hvað varðar aðra tvo dómara, sem auglýst er eftir, skal farið eftir III. kafla laga um dómstóla, þar sem sannarlega þarf að fara í þetta hæfismat allt saman og fyrir nefndir eins og við þekkjum vel í því ferli sem fór í gang hér á sínum tíma.
Mig langar að spyrja hv. þingmann um það sem ég er að reka augun í. Hér segir um þá tvo sem koma utan frá:
„Um réttindi þeirra og skyldur fer að öðru leyti eftir VIII. kafla að því frátöldu að dómanda sem skipaður er skv. 4. mgr. er heimilt að taka sér önnur störf og eiga hlut í félagi eða atvinnufyrirtæki án þess að leita leyfis nefndar um dómarastörf til þess en tilkynna skal hann nefndinni um önnur störf sín og eignarhluti í félagi eða atvinnufyrirtæki.“
Mér fannst þingmaðurinn vera að segja að þeir gætu ekki verið að sinna öðrum störfum. Ef það er málið væri gott að koma því skýrt til skila til þeirra sem á okkur hlýða, ef það er rétt skilið hjá mér að þeir geti tekið að sér önnur störf og slíkt. Það er þá alla vega ekki steinn í götu þess að þessir aðilar geti ekki verið að sinna neinu öðru en hlutastarfi.