150. löggjafarþing — 102. fundur, 12. maí 2020.
dómstólar o.fl.
470. mál
Herra forseti. Í umræðum um þetta mál áðan komu fram sjónarmið um að skerpa þyrfti á nokkrum þáttum varðandi sameiginlegan skilning nefndarmanna á efnisatriðum frumvarpsins. Ég held að það sé rétt að við tökum málið inn í allsherjar- og menntamálanefnd milli umræðna til að ekki leiki vafi á um það hvernig túlka beri einstök atriði sem um var fjallað í umræðunni áðan.