dómstólar o.fl.
Herra forseti. Hér er á ferðinni mjög þarft mál, mjög brýnt réttarfarslega séð að koma á endurupptökudómstól. Ég fagna því að framsögumaður málsins hafi kallað málið inn milli 2. og 3. umr. þar sem svo virðist sem eingöngu í þessum málum eigi ekki að veita þeim gjafsókn sem þurfa mögulega á gjafsókn að halda og þá eingöngu fyrir þessum dómstól. Ég tel það ekki gott. Það verður að taka tillit til þeirra efnaminni í þessum málum eins og öðrum þannig að ég fagna því að málið sé tekið inn í nefndina á milli umræðna.