150. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2020.

samningur ríkisins við erlenda auglýsingastofu.

[15:23]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég verð aftur að vekja athygli á því að hérna er ekki um mál að ræða sem er beint á mínu forræði. Það er þó rétt sem hv. þingmaður segir, og hefur komið fram opinberlega, að það virðist hafa munað mjög litlu á bjóðendum. Það sem ég hef þó heyrt um þetta er að sá aðilinn sem fékk flest stig í þessu mati hafi verið sá eini sem sérstaklega tók fram að mikil áhersla yrði lögð á það að láta sem mest af tilkostnaði við vinnu verkefnisins falla til innan lands, á Íslandi.

Við vitum síðan að af þeirri heildarfjárhæð sem við höfum tekið frá á þinginu til að ráðast í þetta kynningarátak verður langmestu varið til birtinga, birtingarkostnaðurinn er það sem ber þetta verkefni uppi.

Ég held að hér sé verið að hreyfa við máli sem er mikilvægt að gott gegnsæi sé um og allar upplýsingar uppi á borðum.