verkefni á vegum NATO.
Forseti. Komið hefur fram að Atlantshafsbandalagið sé reiðubúið að leggja 12–18 milljarða kr. í uppbyggingu innviða á Suðurnesjum og að um sé að ræða borgaralega innviði sem munu nýtast samfélögunum þar mjög umtalsvert. Það hefur líka komið fram að Vinstrihreyfingin – grænt framboð standi í vegi fyrir því að af þessu verði, sem hljómar ákaflega sérkennilega í ljósi þess að við erum aðilar að NATO og greiðum þangað peninga á hverju ári. Hvers vegna vill Vinstrihreyfingin – grænt framboð ekki fá fjármagn til baka? Ég tala nú ekki um núna þegar atvinnuleysi er eins og það er á Suðurnesjum, nærri 30% í Reykjanesbæ. Hvernig getur Vinstrihreyfingin – grænt framboð leyft sér að koma í veg fyrir þann viðsnúning sem myndi fylgja svona verkefni sem skapa mun hundruð starfa?
Hvers vegna hefur VG þessa afstöðu í ljósi þess að Ísland er aðili að NATO? Leyfir flokkurinn sér að láta pólitísk innanflokksviðhorf til Atlantshafsbandalagsins ráða hér för og fórna með því hundruðum starfa á Suðurnesjum?
Í öðru lagi spyr ég: Hvernig gerist þetta? Hvernig kom Vinstrihreyfingin – grænt framboð eða hæstv. forsætisráðherra í veg fyrir að af þessu yrði? Ég sá haft eftir hæstv. ráðherra í Morgunblaðinu að ekki hefði verið neinn sérstakur þrýstingur á þetta mál umfram önnur. Hvernig ber að skilja það? Er sem sagt mikill þrýstingur í öllum málum eða var enginn sérstakur þrýstingur í þessu máli? Hvers vegna þá þessi niðurstaða?
Spurningarnar eru: Hvers vegna, á hvaða forsendum og hvernig gerði hæstv. forsætisráðherra þetta?