verkefni á vegum NATO.
Herra forseti. Mér þykir sérkennileg þessi tilraun hæstv. forsætisráðherra til að gera lítið úr þessu máli og nánast kalla þetta einhverja hugaróra hæstv. utanríkisráðherra eða einhverjar hugmyndir hans og vangaveltur í tengslum við viðbrögð við efnahagsástandinu. Ég og fjölmargir aðrir þingmenn vorum löngu búnir að heyra af þessum áformum, þessum áhuga Atlantshafsbandalagsins áður en hæstv. utanríkisráðherra setti þetta inn í þá vinnu sem hæstv. forsætisráðherra nefndi. Sá áhugi hefur legið fyrir, vilji til að koma hér í stórfellda uppbyggingu sem myndi skila hundruðum starfa á Suðurnesjum sem er sannarlega þörf á núna og því spyr ég: Má skilja hæstv. ráðherra sem svo að ef þetta gerist nógu formlega eða með réttum leiðum fyrir ráðherrann þá muni hæstv. forsætisráðherra ekki standa í vegi fyrir verkefninu, ekki koma í veg fyrir að ríkisstjórnin afgreiði það, eða með hvaða hætti hefur hæstv. forsætisráðherra komið í veg fyrir að málið fengi framgang til þessa? (Forseti hringir.) Ef það fer þá leið sem hæstv. ráðherra vill sjá það fara, mun þá hæstv. ráðherra fallast á að af því verði?