150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

uppbygging hafnarmannvirkja í Helguvík.

[15:11]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Ég er á svipuðum slóðum og var rætt hér á undan. Ég ætla þá að taka hæstv. ráðherra einmitt á orðinu og ekki blanda saman í þetta sinn efnahagslegum ávinningi og varnarhagsmunum. Ég hef margspurt hæstv. ráðherra vitandi það að Vinstri græn eru algjörlega á móti vestrænni samvinnu og á móti veru Íslands í NATO en ég hef verið fullvissuð um það, m.a. hér í þessum þingsal, að þrátt fyrir það muni forsætisráðherra, sem formaður þjóðaröryggisráðs, beita sér fyrir því að fylgja eftir þjóðaröryggisstefnu okkar, muni fylgja því eftir að þjóðaröryggisstefnunni sé framfylgt. Samkvæmt lögum á þjóðaröryggisráðið einmitt að hafa eftirlit með framkvæmd varnarstefnunnar. Jafnframt á ráðið að meta ástand og horfur í öryggis- og varnarmálum.

Hæstv. ráðherra upplýsti hér að hæstv. utanríkisráðherra hefði komið með þessa hugmynd inn á borð ríkisfjármálanefndar. Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra, formann þjóðaröryggisráðs okkar Íslendinga, sem hefur ákveðnum skyldum að gegna, hvort forsætisráðherra hafi ekki alveg örugglega tekið þessa hugmynd inn í þjóðaröryggisráðið og fengið það til þess að meta einmitt horfur og ástand í öryggis- og varnarmálum og það hvort þessar hugsanlegu uppbyggingarframkvæmdir í Helguvík myndu ekki undirstrika og byggja undir varnarhagsmuni Íslands. Tók hæstv. forsætisráðherra sem formaður þjóðaröryggisráðs þessa hugmynd utanríkisráðherra í þá veru að fara í uppbyggingu á hafnarmannvirkjum í Helguvík, sem getur vissulega stutt betur við okkar varnarhagsmuni, lengra sem formaður þjóðaröryggisráðs?