uppbygging hafnarmannvirkja í Helguvík.
Herra forseti. Nú er það svo, eins og fram kom í máli mínu, að sú tillaga sem hér um ræðir eða hugmynd var til umræðu í tengslum við fjáraukalög sem unnin voru í miklu hraði. Eins og kom mjög skýrt fram í svari mínu við fyrirspurn hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar er þetta ekki ákvörðun sem er tekin með þeim hætti. Svona ákvarðanir ber að ígrunda vel. Hæstv. utanríkisráðherra óskaði ekki eftir því að þetta yrði tekið til skoðunar í þjóðaröryggisráði en ef áfram verður unnið að slíkum hugmyndum þá munu þær að sjálfsögðu verða teknar þar og metnar í samhengi við þjóðaröryggisstefnu okkar og áhættumat. Ég hef lagt á það mikla áherslu sem formaður þjóðaröryggisráðs að við séum að vinna samkvæmt þjóðaröryggisstefnu. Þess vegna er verið að undirbúa áhættumat sem raunar var tekið til endurskoðunar vegna heimsfaraldursins sem núna gengur yfir og er svo sannarlega öryggisógn á kannski stærri skala en við höfum séð áður, í langa tíð. Við þurfum að meta hvernig til að mynda varnir okkar eru gagnvart slíkri öryggisógn. Það er nefnilega þannig, og það veit hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mjög vel, að áhættumat fyrir Ísland snýst ekki eingöngu um uppbyggingu hernaðarmannvirkja heldur snýst það um að meta raunverulegar ógnir í samtíma. Í þjóðaröryggisstefnunni er reynt að fara yfir þessar mismunandi ógnir og áhættumatinu er ætlað að leggja mat á það hver raunveruleg áhætta fyrir Ísland sé og við hljótum að taka ákvarðanir út frá því mati.
Hv. þingmaður heldur því fram að Vinstrihreyfingin – grænt framboð sé á móti vestrænni samvinnu en ég átta mig ekki alveg á því hvað hún á við. Ef hún er að vísa til Atlantshafsbandalagsins er það rétt en við leggjumst svo sannarlega ekki gegn samvinnu við önnur vestræn ríki. Ég ítreka það sem ég hef áður sagt (Forseti hringir.) að viðhald mannvirkja undanfarin þrjú ár á varnarsvæðinu á Keflavíkurvelli hefur verið meira en frá árinu 2002, (Forseti hringir.) þannig að sú ríkisstjórn sem nú situr er svo sannarlega að fylgja þjóðaröryggisstefnunni betur eftir (Forseti hringir.) en fyrri ríkisstjórnir hafa gert.