150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

uppbygging hafnarmannvirkja í Helguvík.

[15:15]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Það er ekkert launungarmál lengur að að mínu mati er núna vegið að vestrænni varnarsamvinnu. Við sjáum að innanbúðarmál stjórnarflokkanna koma m.a. í veg fyrir að þjóðaröryggisráð fjalli um þá hagsmuni sem tengjast uppbyggingu hafnarmannvirkja í Helguvík. Það hlýtur að leiða til þess að við ályktum að stjórnarsáttmálinn sjálfur hindri lögbundna framkvæmd þjóðaröryggisráðs. Það er ekki hægt að álykta neitt annað þannig að ég er bara orðin mjög vantrúuð á öll þau orð sem voru sögð hér í salnum um að forsætisráðherra myndi fylgja eftir þjóðaröryggisstefnunni. Það er verið að grafa undan grundvellinum að vestrænu varnarsamstarfi, það er ekki talað skýrt og ríkisstjórnin með Sjálfstæðisflokkinn innan borðs talar ekki skýrt í þessum efnum. Það er áhyggjuefni, ekki bara fyrir Suðurnesjamenn sem þurfa skýr svör frá ríkisstjórninni heldur landsmenn alla (Forseti hringir.) sem hafa áhuga og metnað til að hafa hér virka varnar- og öryggisstefnu.