uppbygging hafnarmannvirkja í Helguvík.
Herra forseti. Ég ætla að líta svo á að ályktunarhæfni hv. þingmanns sé fremur á borði hinna skapandi greina. Það að segja hér að ég komi í veg fyrir að mál séu tekin til umfjöllunar í þjóðaröryggisráði vegna einhvers konar innanflokkshagsmuna eru mjög alvarleg orð — og ekki sönn. Það er einfaldlega þannig. Að sjálfsögðu ef til einhverra slíkra framkvæmda kemur — ef — því að eins og ég hef ítrekað sagt hafa engar formlegar viðræður átt sér stað um það, eru þær að sjálfsögðu ræddar á vettvangi þjóðaröryggisráðs. Sú umræða byggist á því áhættumati sem þjóðaröryggisráð er að láta vinna. Ég hefði haldið að hv. þingmaður væri mér sammála um að við ættum að vanda vinnubrögð okkar í þessum málum, að við ættum ekki að horfa á þau út frá efnahagslegum forsendum heldur einmitt út frá hinni víðtæku þjóðaröryggisstefnu sem Alþingi samþykkti á sínum tíma.