150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

stuðningur við sveitarfélög.

[15:26]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina um stöðu sveitarfélaganna. Ég bað Byggðastofnun um að greina sérstaklega áhrif ferðaþjónustunnar á atvinnustigið og þar með tekjustreymi þessara sveitarfélaga allra. Níu sveitarfélög komu langverst út þessari greiningu sem var birt nýlega og var til umfjöllunar um helgina. Það eru fimm sveitarfélög á Suðurlandi, þrjú á Suðurnesjum og eitt í Norðausturkjördæmi og hv. þingmaður nefndi þau. Þau eru mjög háð ferðaþjónustunni. Ég hef átt samtöl við þó nokkur þessara sveitarfélaga og við vorum í svo ágætri stöðu að vera í sérstöku verkefni með Suðurnes. Það var reyndar sprottið upp frá annarri sviðsmynd, vaxtarverkjunum vegna þess að þessi svæði hafa vaxið umtalsvert á síðustu árum. Á sama tíma höfum við hafið samtal við Samband íslenskra sveitarfélaga til að greina stöðuna núna og þróun næstu mánaða. Staðan er einfaldlega þannig að m.a. vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar til þessa er staða einstaklinganna betri en ella væri.

Sveitarfélögin hafa áhyggjur af haustinu eða inn í veturinn og ég deili þeim áhyggjum. Það er mikilvægt að við verðum þá með lausnir. Við höfum fengið inn óháðan aðila til að stýra vinnu ríkisvaldsins með sambandinu, Gunnar Haraldsson, og niðurstaða þeirrar vinnu mun liggja fyrir eftir fjórar, fimm vikur. Þá verður komið líkan um það hvernig staðan er mismunandi. Hún er gríðarlega mismunandi eftir sveitarfélögum. Það er rétt hjá hv. þingmanni að einhver þeirra sveitarfélaga sem hún nefndi munu ekki komast í gegnum þetta nema með sértækum stuðningi (Forseti hringir.) ríkisvaldsins en við höfum tíma til að greina og finna réttu leiðirnar, m.a. með þessum sveitarfélögum.