stuðningur við sveitarfélög.
Virðulegur forseti. Ég ætla að svara skýrar einmitt með aðgerðirnar. Mér finnst skipta mestu máli að við náum núna niðurstöðunni um greininguna og stöðuna og m.a. í samtali við þessi sveitarfélög þær leiðir sem eru skynsamlegastar á hverjum stað áður en við förum að greina frá þeim aðgerðum. Ég sé fyrir mér að þær geti verið almennar vegna þess að það eru jú öll sveitarfélög sem glíma við þennan vanda, það eru hins vegar tiltekin sveitarfélög sem glíma við miklu stærri vanda en önnur og við sjáum líka fyrir okkur sveitarfélög sem hafa skilað umtalsverðum afgangi á liðnum árum og munu, bara alveg eins og ríkisvaldið, komast í gegnum þetta með því að taka lán og verða svo á sama stað eftir tvö ár. Slík samfélög eru til og það er ekki hægt að ætlast til þess að ríkissjóður eða framtíðarsamfélagið haldi uppi öllum eins og ekkert hafi gerst. Það verða allir að takast á við þennan vanda en sumir geta það ekki án þess að fá sérstaka aðstoð og mér finnst alveg koma til greina í tilviki þessara sveitarfélaga að þau fái einhvers konar sértæka aðstoð (Forseti hringir.) eins og við erum í raun að framkvæma á Suðurnesjum í dag. (Forseti hringir.)