endurgreiðsla pakkaferða.
Herra forseti. Fyrir þinginu liggur frumvarp um breytingu á lögum um pakkaferðir, endurgreiðslur með inneignarnótu. Fleiri lönd hafa lagt drög að svipaðri leið en eru nú frá að hverfa í meira og minna mæli. Þetta er stórt og fordæmisgefandi mál, stenst jafnvel ekki stjórnarskrá. Nú hafa a.m.k. tveir viðskiptabankar lagt orð í belg og telja þetta óráð. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir hins vegar að þetta sé fín leið hjá ráðherra og að það sé afleitt ef þetta mál fuðri upp í pólitískum smjörklípuslag eins og hann kallar það. Málið er hins vegar ekki svona einfalt, virðulegur forseti. Þetta er líka neytendamál og lýtur að því að verja hagsmuni og rétt einstaklinga og fjölskyldna, frjáls viðskipti og félagslegan rétt.
Hver eru áformin hjá ríkisstjórninni í þessu máli? Á að verja fjölskyldur og heimili, sem dæmi hópa eldri borgara og ungmenna sem búa sig undir útskriftarferð, afmælisferðir og hvaðeina, venjulegt fólk? Þessir hópar hafa lagt mikið undir. Lætur ríkisstjórnin það gott heita að ferðaskrifstofur haldi bótalaust eftir peningum viðskiptavina í þeirri viðleitni að skapa sér viðunandi lausafjárstöðu? Ég geri alls ekki lítið úr því. Hvaða tryggingu hafa viðskiptavinir með inneignarnótu í höndunum fyrir því að staða ferðaskrifstofa verði eitthvað burðugri eftir nokkra mánuði? Má ekki ganga út frá því sem vísu að fjárskuldbindingar þeirra verði ærnar eftir sem áður, þ.e. þeirra sem enn verða starfandi? Sjö hafa þegar lagt upp laupana.
Herra forseti. Ég spyr hæstv. ráðherra neytendamála hvort ásetningurinn sé að halda frumvarpi þessu til streitu eða leita annarra leiða eins og dæmi eru um í kringum okkur. Ég spyr líka: Hversu miklar eru þessar fjárhæðir sem viðskiptavinum ferðaskrifstofa er ætlað að lána vaxta- og verðbótalaust í allt að eitt ár? Hversu miklir peningar liggja þarna inni? Er eingöngu um íslenska ferðamenn að ræða eða ná skuldbindingar ferðaskipuleggjenda einnig að einhverju leyti til erlendra ferðamanna? Hvert er þá umfang þess?