endurgreiðsla pakkaferða.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Í fyrsta lagi tek ég undir með hv. þingmanni að málið er alls ekki einfalt. Ég vil líka að það komi fram að hér er vitnað til þess að að baki kröfum eru að sjálfsögðu fjölskyldur og heimili þeirra. Aðdragandi málsins er sá að við á þinginu höfum þegar innleitt þessa tilskipun frá Evrópusambandinu og ég held því fram, og held að erfitt sé að mótmæla því, að forsendur þeirrar tilskipunar séu brostnar. Enginn hefði skrifað tilskipunina eins og gert var ef fólk hefði getað gert sér í hugarlund að hægt væri að slökkva á allri atvinnugreininni í allri álfunni og alls staðar í kring á einu bretti. Það breytir ekki því að það eru gildandi lög og réttur neytenda er mjög ríkur í gildandi löggjöf.
Við erum með fyrirtæki sem eru alls konar. Þau eru mjög misstór. Fyrirtæki sem hafa leyfi til að selja pakkaferðir eru tæplega 300. Þar að baki eru líka stundum bara fjölskyldur. Við gerum kröfu um að þau séu með tryggingar bundnar og þær tryggingar eru stundum í formi reiðufjár, stundum í formi veða og þau veð eru stundum einfaldlega í heimili þess fólks. Við vitum því að ef ekkert verður að gert, sem getur verið að verði niðurstaðan, munu margar fjölskyldur og mörg heimili líka lenda í vandræðum.
Ég hef sagt frá fyrsta degi að málið er ekki einfalt. Það er ekki svart eða hvítt. Ég átta mig mjög vel á því að það að ganga inn í löggjöf sem breytir réttindum neytenda er umdeilt. Við stóðum einfaldlega frammi fyrir því að vera með þessa löggjöf í þessum aðstæðum, að horfa framan í fjöldamörg gjaldþrot, og þá þurfti að leita leiða, margra leiða. Við höfum legið yfir því. Mörg lönd hafa farið mismunandi leiðir. Við gátum ekki farið sömu leið og Danir vegna þess að við erum ekki með einn sameiginlegan sjóð heldur erum við með jafn margar tryggingar og fyrirtækin eru mörg. En ég heyri umræðuna. Það liggja um 8 milljarðar í þessum tryggingum. Það eru hins vegar alls konar (Forseti hringir.) útfærslur á því. Ég kem nánar inn á það í seinna svari hver staðan er innan viðkomandi fyrirtækja, tryggingarfjárhæðin, útistandandi kröfur og þar fram eftir götunum.