150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

endurgreiðsla pakkaferða.

[15:36]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ætlar hæstv. ráðherra að standa við þetta frumvarp? Hvað liggja miklir peningar almennings þarna inni vaxta- og verðtryggingarlausir? Í greinargerðinni segir að ferðaskrifstofurnar séu mjög mikilvægar í samfélaginu og í ljósi þess spyr ég: Ef hæstv. ráðherra ætlar að halda þessu frumvarpi til streitu, er ekki eðlilegt að tekist verði á við verkefnið með miklu meiri vernd fyrir neytendur í huga og að þessi þáttur verði hreinlega hluti af stóra aðgerðapakkanum, að neytendur fái fulla tryggingu fyrir endurgreiðslu strax, inneignarnótur verði innleysanlegar strax fyrir atbeina stjórnvalda með ákveðinni útfærslu, að ríkissjóður taki áhættuna þarna en ekki fjölskyldurnar og óvissu þar með eytt? Þannig yrði ávinningur beggja vegna.

Samkvæmt frumvarpinu er engin vörutrygging, engir vextir, engin verðtrygging. Þarna virðist í lagi að verðmætin fuðri upp. Hér er tækifæri en að óbreyttu virðist augljóst að hagsmunir fyrirtækja verða settir ofar hagsmunum almennings í landinu.