150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

endurgreiðsla pakkaferða.

[15:37]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ferðaskrifstofur eru mjög mikilvægur hlekkur í þessari virðiskeðju. Þær eru mjög mikilvægur hlekkur í íslenskri ferðaþjónustu. Frá því að við hófum vinnu við þetta frumvarp hafa stjórnvöld lagt fram margs konar aðgerðir sem vissulega gagnast þessum fyrirtækjum eins og öðrum fyrirtækjum. Það er þó þannig að brúarlánin virðast ekki virka vel fyrir þessi fyrirtæki vegna launahlutfalls og annars. Stuðningslánin geta ekki nýst í einhverjar endurgreiðslur heldur fara þau í reksturinn og sum fyrirtæki falla á milli og geta illa nýtt sér úrræðin. Við vitum af slíkum jaðartilvikum. Það er þó ekki þannig að inneignarnótur í þessum fyrirtækjum séu einskis virði vegna þess að ólíkt því sem almennt er eru tryggingar þarna að baki.

Í þessari flóru er líka fullt af fyrirtækjum sem selja nánast eingöngu ferðir til erlendra ferðamanna. Sá hópur er líka þarna inni og við getum ekki mismunað þar á milli, látið eitthvað annað gilda um íslenska neytendur en þá erlendu. Eins og ég segi heyri ég umræðuna, ég heyri áhyggjurnar (Forseti hringir.) og gagnrýnina og ég finn ekki fyrir miklum pólitískum stuðningi við málið þannig að þá kann að vera að ekkert verði að gert annað en þær tillögur sem þegar eru. Þá fer það bara sína leið.