ferðaþjónusta framtíðarinnar.
Forseti. Mig langaði að ræða aðeins við hæstv. ráðherra ferðamála. Það kemur kannski ekki á óvart að okkur er mörgum ferðaþjónustan hugleikin. Við höfum fylgst með henni springa út síðustu ár og áratugi frá því að vera „eitthvað annað“, sem við sem börðumst gegn virkjunaráformum á sínum tíma héldum á lofti og stundum var hlegið að, yfir í að verða mikilvægasta útflutningsgrein landsmanna. Íslensk stjórnvöld hafa kannski aldrei tekið almennilega utan um það. Geirinn kallaði eftir stefnu og reglum um sig sjálfan mjög lengi, svo annað eins hefur varla sést, að grein hafi kallað svo mikið eftir því, en stóð undir gríðarlega mikilli verðmætasköpun sem og undir því hlutverki sem greininni var falið, að taka á móti öllum þeim ferðamönnum sem komu til landsins.
Nú er staðan eins og hún er og við sjáum mörg fyrirtæki berjast í bökkum, allt frá stórum ferðaþjónustufyrirtækjum sem hafa meira borð fyrir báru yfir í lítil fjölskyldufyrirtæki, jafnvel rekin á eigin kennitölu þar sem framfærsla allra í sömu fjölskyldu veltur á því fyrirtæki.
Við höfum rætt um að hér verði að viðhalda ferðaþjónustu af því að ferðaþjónustan verður viðspyrna okkar út úr vandanum. Við höfum farið yfir efnahagslegar stuðningsaðgerðir við ferðaþjónustuna sem mörgum hverjum hefur verið tekið mjög vel innan greinarinnar og er mjög gott að séu komnar, en hvernig sjáum við þá ferðaþjónustu fyrir okkur sem kemur út úr þessu ástandi? Munum við stuðla að því að byggja upp umhverfisvænni og græna ferðaþjónustu? Hvernig sér ráðherra sem er líka ráðherra nýsköpunarmála fyrir sér samtengingu þar á milli?