ferðaþjónusta framtíðarinnar.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Við sjáum að íslensk ferðaþjónusta skiptir gríðarlegu máli fyrir íslenskt samfélag, ekki bara ríkissjóð eða íslenskt atvinnulíf og verðmætasköpun heldur líka bara það sem snýr að lífsgæðum okkar, ekki einungis lífskjörum heldur líka lífsgæðum. Uppbygging ferðaþjónustunnar hefur verið sjálfsprottin byggðaaðgerð og það er líklega það fallegasta sem mönnum finnst við uppbyggingu þessarar atvinnugreinar, hin sjálfsprottna byggðaaðgerð.
Erlendir ferðamenn eyddu um 284 milljörðum árið 2019, sá ég í því sem Hagstofan var að birta. Í veitinga- og gistiþjónustu eru 109 milljarðar. Við getum ímyndað okkur öll þessi afleiddu áhrif þegar kemur t.d. að innlendri matvælaframleiðslu ef 50 milljarðar fara í veitingar bara hjá erlendum ferðamönnum.
Við lögðum mikla áherslu á að fara í stefnumótun fyrir greinina og ég er mjög stolt af því hvernig til tókst, hvernig sú vinna var unnin, afurðunum sem komu út úr því að vinna þetta með sveitarstjórnarstiginu, með atvinnugreininni, og horfa til langs tíma. Það er ágætisprófsteinn að horfa núna á þennan stefnuramma. Hann stendur algjörlega á eins styrkum stoðum og við unnum hann. Þetta er algjört lykilatriði. Við erum ekki að fara að breyta um neinn kúrs þegar kemur að stefnuramma og leiðarljósi íslenskrar ferðaþjónustu til ársins 2030.
Það sem er kannski áhugavert að hugsa til er að okkur tókst á nokkrum árum að fara úr 500.000 ferðamönnum í 2 milljónir ferðamanna. Það tókst ágætlega þrátt fyrir allt sem við höfum þurft að laga til o.s.frv. Núna er líka tíminn til að spyrja: Hvað lærðum við af því? Hvað viljum við gera betur núna? Á hverju viljum við byggja? Hvað viljum við mögulega gera öðruvísi? Allar aðrar aðgerðir stjórnvalda, til að mynda aukinn stuðningur við rannsóknir og þróun, (Forseti hringir.) nýtist auðvitað ferðaþjónustunni. Við þurfum að nýta þann tíma ofboðslega vel sem við höfum núna til að vinna hratt til þess einmitt að ákveða hvað við viljum gera betur og nýta þær aðgerðir til að gera okkur samkeppnishæfari og sterkari.