ferðaþjónusta framtíðarinnar.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Í stefnurammanum erum við til að mynda að tala um aukna framleiðni, verðmætasköpun, samkeppnishæfni um allt land, ábyrga ferðaþjónustu sem nýtir tækni, nýsköpun og vöruþróun. Við höfum lagt áherslu á það að fjöldi ferðamanna er ekki það sem skiptir máli heldur hvað við fáum út úr greininni, bæði í formi lífskjara og lífsgæða, upplifun ferðamanna, fagmennska, gæði og öryggi. Auðvitað sjáum við að þeir þættir sem við hefðum viljað marka okkur sérstöðu á verða, trúi ég, enn meiri sérstaða eftir allt það sem hefur gengið á, að við getum enn frekar byggt á því sem skiptir okkur máli, það sem við höfum fram að færa, sem er til að mynda náttúran, hreinleikinn, að við keyrum áfram orkuskipti, að það sé sérstök upplifun fyrir ferðamenn að koma hingað og upplifa það sem Ísland hefur upp á að bjóða. Við getum algjörlega verið framúrskarandi í því og ég finn ekki fyrir öðru en að það sé mikil samstaða um þetta. Þess vegna finnst mér gott, þrátt fyrir að við séum á erfiðum tímum núna, að það eru allir sammála um að byggja ferðaþjónustuna upp að nýju og við erum með leiðarljósin þannig að nú höfum við tækifæri til að hreyfa okkur jafnvel hraðar í þeim efnum.