stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
Virðulegi forseti. Aðeins fyrst varðandi það að við höfum horft upp á marga vera að misnota fyrri úrræði. Ég verð að vekja athygli á því að greiðslur úr ríkissjóði vegna hlutabótaleiðar hafa aldrei farið til fyrirtækja. Þær hafa eingöngu borist beint frá Vinnumálastofnun til launþega. Vinnuveitandi sem hefur gert slíkan samning sér á eftir starfskröftum viðkomandi starfsmanns. Fyrirtækið hefur hvorki fengið að njóta starfskrafta þeirra launþega sem hafa verið á úrræðinu né fengið eina einustu krónu úr ríkissjóði. Þetta er mjög mikilvægt að hafa í huga. Ég tel að með því meginskilyrði sem er að finna í þessu frumvarpi, um að þeir einir sem hafa orðið fyrir 75% tekjufalli geti átt rétt á því, fyrir utan önnur skilyrði, að sækja úrræðið, þá sé alveg ljóst að það er hæpið að einhver fyrirtæki muni geta misnotað það, eða erum við ekki örugglega sammála um að þau fyrirtæki (Forseti hringir.) eru ekki í neitt sérstaklega góðum málum sem hafa tapað bróðurpartinum af tekjum sínum?