150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.

811. mál
[16:17]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvort ekki sé rétt skilið hjá mér að það eina í 4. lið 4. gr. frumvarpsins, sem leitt getur til þess að umsækjanda yrði hafnað á efnislegum forsendum, er skilyrði um að vera ekki í vanskilum með opinber gjöld. Önnur skilyrði kveði eingöngu á um að tilteknum lögbundnum gögnum hafi verið skilað. Ekkert er sagt um það hvort og þá hvernig efni þeirra gæti leitt til synjunar. Engin heimild virðist vera til þess. Íslenskt félag sem er í eigu erlends félags eða einstaklings og hefur skilað tilskildum gögnum, þar á meðal upplýsingum um hinn raunverulega erlenda eiganda, mun þannig falla undir styrkheimild laganna. Þetta félag fellur ekki undir CFC-reglur þar sem það er ekki eigandi að erlendu félagi en getur greitt eiganda sínum eða félagi í hans eigu á lágskattasvæði allan hagnað sinn í formi vaxta, þjónustugreiðslna, afnotaréttar og fleira (Forseti hringir.) svo og arðs og þar með lækkað eða þurrkað út skattstofninn hér á landi.