150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.

811. mál
[16:19]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er ekki alveg viss um að ég treysti mér til að svara jafn nákvæmri spurningu og hér var borin upp. En ég heyri það sem hv. þingmaður er að segja, hún virðist hafa áhyggjur af því að einhver erlend fyrirtæki með starfsemi á Íslandi, í gegnum íslenskan lögaðila væntanlega, vegna þess að þeir einir geta sótt í úrræðið sem hafa fulla ótakmarkaða skattskyldu á Íslandi, geti nýtt úrræðið. Ég átta mig ekki alveg á fyrirspurninni, á því hvað það er sem hv. þingmaður telur að vanti í frumvarpið. En ég vil byrja á því að benda á að við erum að ræða um fyrirtæki sem eru með starfsemi á Íslandi og hafa orðið fyrir 75% tekjufalli eða meira.