150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.

811. mál
[16:30]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þá beina athyglinni að öðru og það er að verið er að setja ýmis skilyrði, eðlilega, fyrir því að fyrirtæki og/eða launþegar eða hvernig það nákvæmlega liggur geti notið þessa stuðnings. Ég sé að það er búið að samræma þessi skilyrði nokkuð en ég verð þó að fá að spyrja hæstv. fjármálaráðherra út í frumvarp samráðherra hans sem er flutt núna á sama tíma en þar er komið skilyrði um það að æðstu stjórnendur fyrirtækja sem njóta fyrirgreiðslu megi ekki hafa meira en 3 milljónir í laun á mánuði væntanlega. Og ég spyr: Er ekki rétt að skilyrði séu samræmd á milli þessara úrræða? Hvað finnst hæstv. fjármálaráðherra almennt um að verið sé að setja skilyrði um það hvað einstaklingar innan fyrirtækjanna hafa í laun? Er hann sammála þeirri aðferðafræði?