stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Þingmaðurinn nefndi einmitt að aðeins ein tillaga stjórnarandstöðunnar hefði verið samþykkt og eins og þingheimur þekkir var sú tillaga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar, afar góð tillaga frá hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur sem þingmenn þekkja vel.
Þingmaðurinn kom líka aftur inn á það sem hann kallaði samráðsleysi og mér er kunnugt um það alveg eins og þingmanninum að formenn stjórnmálaflokkanna og hæstv. forsætisráðherra hafa átt nokkra fundi þar sem þeim hafa verið kynnt þau mál sem eru í bígerð og hvað er um að vera. Nú sit ég náttúrlega ekki þá fundi en hv. þingmaður gerir það. Hann getur kannski upplýst þingheim að einhverju leyti um það hvað þar fer fram. En svo langt sem það nær sem samráð þá held ég að það sé nokkurn veginn á pari við það sem gerist á öðrum Norðurlöndum. Á hitt ber að líta að við erum náttúrlega, eins og við þreytumst ekki á að segja, í nokkuð fordæmalausum aðstæðum og sumt þarf að vinna mjög hratt. Eðli málsins samkvæmt, eins og ég og þingmaðurinn erum greinilega sammála um, koma mál ekki alltaf fullbúin inn í þingið.
En varðandi það sem þingmaðurinn sagði um þau skilmerki sem nú er verið að setja í hlutabótaleiðina, sem við erum reyndar ekki að ræða hér, man ég ekki til þess að það hafi komið fram hér í þingsal einhverjar háværar raddir um frekari skilyrði þegar það frumvarp var sett. Þær umræður voru sannarlega (Forseti hringir.) ekki fyrirferðarmiklar í hv. velferðarnefnd.