stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
Herra forseti. Jú, þær raddir heyrðust sannarlega, a.m.k. hér í þingsal. En af því að hv. þingmaður vitnar í samráðið sem ríkisstjórnin hefur átt við formenn stjórnarandstöðuflokkanna þá verð ég því miður að upplýsa hv. þingmann um að formaður flokks hans hefur þá ekki sagt honum satt um það samráð, nema það sé talið samráð að kalla saman formenn stjórnarandstöðuflokkanna einum og hálfum til tveimur klukkutímum fyrir blaðamannafundi til að segja okkur það sama og við getum séð í sjónvarpinu tveimur tímum seinna. Það er ekki samráð, hv. þingmaður. Og ef hæstv. forsætisráðherra hefur haldið einhverju öðru fram við þingflokk sinn þá er það bara mjög alvarlegur hlutur. Ég held að hún hafi sagt í Víglínunni fyrir hálfum mánuði þegar ég var með henni þar, að hún hafi skrifað í minnisbækur sínar sex fundi. Þá skal ég bara upplýsa hv. þingmann um að það voru engir samráðsfundir, það voru upplýsingafundir. Eða hverjar telur þingmaðurinn líkurnar á að ríkisstjórnin hefði brugðist við ábendingum okkar þar þegar vitað var að ríkisstjórnin var að fara beint eftir fundinn í Hörpu til að tilkynna um aðgerðirnar? Það er sýndarsamráð. Það er ekkert samráð.
Varðandi breytingartillögur okkar er um þær að segja að þær voru tilraunir til að stíga stærri og nauðsynleg skref til að takast á við þessa kreppu. Og þingmenn stjórnarmeirihlutans tóku orð hæstv. fjármálaráðherra um að það ætti að gera meira en minna, og gerðu minna en meira.