stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
Herra forseti. Við ræðum hér þingmál sem mörg okkar hefðu ekki talið líklegt að við ættum einhvern tímann eftir að ræða en það er kannski til marks um það hvað þeir tímar sem við lifum eru sérstakir, þ.e. að fara að greiða hluta launakostnaðar í uppsagnarfresti. Margir þingmenn hafa varpað fram þeim vangaveltum í dag, sem eru algerlega réttlætanlegar, hvernig þetta spili saman við hlutabótaleiðina. Ég er einn af þeim sem hafa velt því fyrir sér og er kannski eini þingmaðurinn sem er svo heppinn að vera bæði í hv. velferðarnefnd og hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Það þýðir þó ekki að ég ætli mér þá dul að geta svarað vangaveltum hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar áðan en ég mun a.m.k. fyrir mitt leyti hafa tækifæri til þess að fylgjast náið með báðum málunum, sem ég tel einmitt mjög mikilvægt að við höfum tækifæri til.
Þetta mál er að vissu leyti hluti af heildarúrræðunum og verður svolítið að skoðast í því samhengi, það er samhengi á milli allra þessara þátta. Þegar menn fóru fyrst fram með hlutabótaleiðina held ég að fá okkar hafi trúað því að þörf yrði á því að framlengja það úrræði fram undir haust. Mörg okkar trúðu því að það myndi örugglega verða framlengt til júníloka en eftir á að hyggja var það kannski skynsamlegt sem var gert, og er skynsamlegt, held ég, að taka þetta í þessum skrefum. Núna vitum við að þau vandræði og erfiðleikar í hagkerfinu sem hljótast af þessum heimsfaraldri verða langvinnari en menn trúðu að þau gætu orðið í upphafi og þá kemur þetta úrræði inn. Það sem það mun að einhverju leyti gera er vafalítið að forða einhverjum fyrirtækjum frá því að fara alveg í þrot og þar með forða því að sá hluti kostnaðar lendi á Ábyrgðasjóði launa, en það er rétt að hafa í huga að upphæðirnar sem um er að ræða eru sambærilegar við þær upphæðir sem Ábyrgðasjóður launa gæti þurft að greiða í slíkum tilvikum. Það er miðað við sömu tölur í þessum lögum og í reglugerð um Ábyrgðasjóð launa, sem ég tel að skýri líka ákveðið samhengi.
Mér finnst þess hafa gætt mjög í umræðunni að menn tali um að ekkert hafi verið hlustað, ekkert verið tekið tillit o.s.frv. í öllum þessum málum. Ég vil í því sambandi benda á að ekkert af Covid-málunum hefur farið út úr þinginu, þ.e. sem samþykkt lög, í nákvæmlega sama formi eða á sama hátt og það kom til þingsins. Þingið hefur gert umtalsverðar breytingar á öllum málunum. Ég held að það sé engin tilviljun, herra forseti. Ég held að það sé einmitt vegna þess að við erum í svo breytilegu ástandi og ég alla vega leyfi mér að trúa að þau sem sjá málin í þinginu sjái málin ekki nákvæmlega sömu augum og þau sem eru í Stjórnarráðinu og hafa þess vegna náð að bæta öll málin í meðförum þingsins. Þetta held ég að sé mjög mikilvægt að við munum.
Aðeins sértækt að þessu frumvarpi. Það eru í 4. gr. frumvarpsins sett skilmerki fyrir því hvað þurfi að koma til. Það er m.a. lagt til að það sé 75% samdráttur í tekjum fyrirtækis og fleiri atriði sem margir hv. þingmenn hafa komið inn á, t.d. um arðgreiðslur, skatta og skyldur o.s.frv. Mér þykir einsýnt að þetta muni verða rýnt mjög gaumgæfilega í hv. efnahags- og viðskiptanefnd, skilyrðin sem þarna eru. Ég velti því fyrir mér hvort það sem kemur fram í 2. tölulið skilyrðanna, að það séu margar leiðir til þess að komast inn í úrræðið eftir því hvernig tekjufallið hefur orðið, þurfi að rýna gaumgæfilega, hvort það sé endilega heppilegt að nánast leyfa fyrirtækjunum að velja sér mismunandi aðferðir við að hoppa inn í úrræðið. Þetta er eitt af því sem ég mun rýna sérstaklega.
Það er mikilvægt að mínu mati, sem kemur fram í 5. gr. frumvarpsins, að í öllum tilfellum er gert ráð fyrir því að fyrirtækin beri hluta kostnaðarins. Fyrirtækin munu ekki labba frá þessu úrræði án þess að hafa borið nokkurn hlut, þau munu bera 15% af kostnaðinum en stuðningurinn er líka að hámarki 633.000 kr. á mánuði, eins og ég kom inn á áðan. Þetta er mikilvægt að hafa í huga.
Þá eru það annars vegar 8. gr. um tekjufærslu og hins vegar 9. gr. um endurgreiðslu. Ég held að þetta séu mjög mikilvægar greinar vegna þess að það er mikilvægt að fyrirtæki þurfi að tekjufæra þennan stuðning. Þar með myndar stuðningurinn hluta af skattstofni þess fyrirtækis fyrir það ár og það er afar mikilvægt. Á sama hátt er mikilvægt það sem kemur fram í 9. gr., að það eru leiðir til þess að komast „út úr“ úrræðinu áður en því lýkur og út úr þeim skilmerkjum sem ég rakti lauslega áðan, en þá aðeins með þeim hætti að stuðningurinn sé endurgreiddur. Mér finnst það skipta töluvert miklu máli.
Mér finnst ákvæði 11. gr. einnig skipta máli varðandi réttindi launafólks sem er sagt upp á grundvelli þessara laga þegar fyrirtæki nýtur stuðnings á grundvelli sömu laga. Tiltekið er að viðkomandi launamaður hafi forgang að starfi verði það til aftur á næstu 12 mánuðum eftir að uppsögn á sér stað. Þá er einnig mikilvægt, og ég mun reifa það í hv. efnahags- og viðskiptanefnd, það sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson kom inn á áðan varðandi það hvort eðlilegt væri að fyrirtæki fengju vinnuframlag frá starfsmanni sem væri inni í þessu úrræði meðan á úrræðinu stæði. Við þurfum að skoða þetta mjög gaumgæfilega vegna þess að það kann að orka tvímælis að það sé a.m.k. hægt að setja upp þá stöðu sem þingmaðurinn kom inn á, að fyrirtækið væri hreinlega að nota úrræðið til að fleyta sér eða halda rekstri gangandi með sömu starfsemi og þar með í raun hlunnfara ríkissjóð eða misfara með úrræðið eins og það er hugsað. Á hitt er að líta að skilmerkin um 75% tekjufall eru kannski það há hvort eð er að ekki er líklegt að það gerist, en mér finnst að við í nefndinni þurfum að skoða þetta sérstaklega og meta hvort ástæða sé til að þétta skilmerki hvað það varðar eða skoða með hvaða hætti hægt er að taka betur utan um þessar áhyggjur.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni, herra forseti, en vona að hv. nefnd nái að taka á þeim álitaefnum sem ég velti upp hér.