150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.

811. mál
[17:52]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Þetta eru athyglisverðar vangaveltur hjá hv. þm. Halldóru Mogensen. Ég ætla ekki að halda því fram að mér hafi dottið þetta í hug áður. Ég hef ekki velt þessu sérstaklega fyrir mér. Hins vegar má segja að að vissu leyti hafi svipað verið prófað áður, eftir hrun. Við reyndum það, ég man ekki nákvæmlega hversu lengi það varði, þar sem menn gátu farið til starfa og ríkið hélt í rauninni áfram að borga hluta af launum viðkomandi starfsmanns. Það má segja að það hafi verið ein útgáfa af hlutabótaleiðinni. Það er til.

Ég veit ekki hvort ástæða sé til að afnema eða taka tímabundið burtu skilyrði fyrir atvinnuleysisbótum. En ég er sannfærður um að í þessu ferli öllu, frá því að þessi heimsfaraldur byrjaði og þar til að við teljum að hagkerfi okkar sé að ná viðspyrnu aftur, munum við þurfa að horfa til þess hvernig atvinnuleysiskerfið okkar virkar og hvernig atvinnuleysistryggingar virka. Það má segja að við höfum stigið fyrsta skrefið í þá átt að þétta það kerfi í seinasta pakka með samþykktri tillögu hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur. Sannarlega lítið skref, en þó skref í þá átt að reyna að bregðast við. Og ég ítreka að það kann að vera að við þurfum að taka fleiri skref í þá veru.