stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Þingmaðurinn spurði hvort ástæða væri til að ríkið yrði kröfuhafi í þeim fyrirtækjum sem fara í þrot og hafa þegið stuðning. Ábyrgðasjóður launa verður kröfuhafi við að greiða út laun til launamanna hjá gjaldþrota fyrirtækjum. Þar með verður ríkissjóður í raun kröfuhafi í þeim fyrirtækjum. Ég veit ekki hvort hægt er að ganga lengra en það. Ég ímynda mér að þingmaðurinn eigi við að krafan sem ríkissjóður gæti mögulega átt samsvaraði allri upphæðinni, líka frá því áður en fyrirtækið þurfti að fara í þrot, ekki bara seinni hluta tímans. Það kann vel að vera að setja þurfi einhver slík skilmerki inn í lagatextann, að sömu skilmerki gildi um þennan stuðning, enda má fyrirtækinu sem farið er á hausinn í sjálfu sér að vera nokk sama um hver það er, og ætti kannski að vera fagnaðarefni fyrir fyrirtækið að ríkið ætti stærri kröfur en einhverjir aðrir. En þetta er áhugaverð vangavelta og verður áhugavert að skoða í hv. nefnd.