stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og vil byrja á að taka fram að það voru ekki mín orð að það væri ekki ólöglegt að vera með fé í skattaskjólum. Þingmaðurinn veit að það er ekki eitthvað sem má. Það sem ég sagði hins vegar var að það væri ekki ólöglegt að eiga fé erlendis svo framarlega sem maður gefur það upp og borgar af því skatta. Það er líka rétt hjá þingmanninum að við getum þrengt öll þau úrræði sem við leggjum fram eins og okkur sýnist. Við getum sett skilmerki og skilyrði á öll þau úrræði sem við leggjum fram. En við skulum samt ekki gleyma því að við megum ekki þrengja þau það mikið að það verði til þess að fleiri tapi störfum en þyrftu, eða alla vega ekki í hundraða- eða þúsundavís. Þess vegna er að mínu viti mjög mikilvægt að gaumgæfa með hvaða hætti þessar takmarkanir eru settar.
Ég er algjörlega til í að ræða það ásamt hv. þingmanni í hv. efnahags- og viðskiptanefnd, og fara yfir það eina ferðina enn, hvort með einhverjum hætti eigi að girða frekar fyrir að menn komi sér undan skattgreiðslum eða reyni að komast inn í úrræðin sem ekki þurfa á þeim að halda, það er sjálfsagt að ræða það. En við skulum ekki gleyma því að það eru fjölmörg fyrirtæki á Íslandi með fullkomlega löglega starfsemi sem eiga fyrirtæki og fé og í fyrirtækjum á svokölluðum lágskattasvæðum. Við nefnum Holland. (OH: Holland er ekki lágskattasvæði.) Holland er skilgreint sem lágskattasvæði í mjög (OH: … Nei. Í alþjóðlegum viðmiðum.) mörgum viðmiðum. (OH: Þú verður að lesa þér betur til.) Írland er í sumum tilvikum skilgreint sem lágskattasvæði, (OH: Ekki samkvæmt íslenskum lögum. ) Lúxemborg er í sumum tilvikum skilgreind sem lágskattasvæði. Það er hægt að teygja þetta á alla kanta en við skulum frekar ræða það á þeim nótum að þeir sem á þessum úrræðum þurfa að halda geti komist í þau. En finnum leiðir í sameiningu (Forseti hringir.) til að bregðast við áhyggjum þingmannsins.