150. löggjafarþing — 104. fundur, 18. maí 2020.
stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
811. mál
Í kjölfar fyrirspurnar hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar um hvernig fara megi með mál sem hafa snertifleti, t.d. fjárhagslega, en hafa ratað í ólíkar nefndir, hefur forseti fengið þær upplýsingar, þann ótæmandi lista, að tvennt sé hægt að gera: Nefndir geta annars vegar fundað sameiginlega og hins vegar getur ein nefnd einnig óskað álits annarrar. Listinn er ekki tæmandi en forseti beinir hv. þingmanni til forstöðumanns nefndasviðs til frekari fyrirspurna um þetta áhugaverða efni.