150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar atvinnufyrirtækja.

814. mál
[18:21]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að fara yfir þetta frumvarp sem ég er ekki búin að lesa, svo ég viðurkenni það bara áður en ég ber upp spurningu mína. En við í Samfylkingunni höfum margoft talað um það í þessu ástandi að það sé afskaplega mikilvægt að fyrirtæki séu ekki keyrð í þrot og það eigi við um heimili líka, að hvorki fyrirtæki né heimili séu keyrð í þrot í þessari stöðu. Í því sambandi fengu líka bankarnir slaka á kröfum þannig að þeir hefðu laust fé til að lána og fresta greiðslum. Ég velti fyrir mér hvort það sé farið að bera á því að kröfuhafar séu farnir að ganga að fyrirtækjum, hvort bankar séu ekki enn að boða þann sveigjanleika sem þeir skrifuðu undir að þeir ætluðu að gera. Hversu mikilvægt finnst hæstv. ráðherra að þetta frumvarp nái fram að ganga? Er komið að ögurstund hjá mörgum fyrirtækjum hvað þetta varðar þannig að nauðsynlega þurfi að flýta þessu máli hér í gegn?