150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar atvinnufyrirtækja.

814. mál
[18:22]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ég veit að frumvarpið er ansi þétt, eins og hv. þm. Birgir Þórarinsson kom inn á, þannig að það er talsverð lesning í því. Varðandi það hvort bankarnir séu að ganga þvert á það sem þeir hafa haldið fram um ákveðinn sveigjanleika vegna ástandsins höfum við ekki orðið vör við það.

Varðandi frumvarpið sérstaklega þá höfum við lagt miklu vinnu í það svo að úrræðið geti hentað sem flestum fyrirtækjum til þess að ná sér á strik aftur, sem er afar mikilvægt fyrir alla launamenn sem þar hafa unnið. Við sjáum að það eru mörg fyrirtæki farin svolítið að bíða eftir því. Það er kannski ekki endilega komið að ögurstundu í fyrirtækjunum en það eru mun meiri líkur á því að þau nái að efla sig aftur og koma sér á strik ef þau komast fljótt í ákveðið skjól. Ég held að mjög mikilvægt sé að þingið taki frumvarpið til ítarlegrar meðferðar en samt sem áður eins hratt og mögulegt er af því að hérna erum við að bjóða upp á skjól sem er bæði mun einfaldara en það skjól sem er í boði í dag og undir það falla mun fleiri fyrirtæki, sérstaklega þau sem hafa lent erfiðleikum vegna þess ástands sem uppi er. Það er líka kostnaðarminna, sem hentar þá betur litlum og meðalstórum fyrirtækjum, og kemur fyrirtækjum fyrr í skjól en það úrræði gerir sem er í lögunum í dag.

Við sjáum að staðan verður alvarlegri í raun með hverri viku. Þegar við ræddum hér saman fyrir að verða einum og hálfum mánuði síðan áttuðum við okkur kannski minna á hversu alvarleg staðan yrði fyrir mörg fyrirtæki og hversu lengi það myndi vara. Mitt mat og þeirra sem ég hef ráðfært mig við og átt samráð við vegna þessa frumvarps er að það myndi skipta miklu máli og m.a. einhver fyrirtæki gætu nýtt þetta í sumar og þá myndu þrír mánuðir duga ýmsum.